Fotbolti.net
28.04.18 - 16:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

David Atkinson aftur í ÍBV (Staðfest)

David Atkinson aftur í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Enski varnarmaðurinn David Atkinson mun koma aftur til Íslands í sumar og spila með ÍBV. Þetta staðfesti Kristján Guðmundsson við Fótbolta.net eftir 4-1 tap ÍBV gegn Breiðablik í Pepsi-deild karla í dag.
Hinn 25 ára gamli David kom öflugur inn í vörn Vestmannaeyinga um mitt sumar í fyrra og hjálpaði liðinu að verða bikarmeistari og að bjarga sætinu í Pepsi-deildinni.

Ekki var búist við því að hann væri á leiðinni aftur en Kristján staðfesti það við Fótbolta.net í dag.

Eyjamenn fengu fjögur mörk á sig gegn Blikum áðan og ljóst er að Atkinson mun styrkja liðið mikið.

Komnir:
Alfreð Már Hjaltalín frá Víkingi Ó.
Ágúst Leó Björnsson frá Stjörnunni
Dagur Austmann Hilmarsson frá Stjörnunni
David Atkinson frá Englandi
Guy Gnabouyou frá Torquay
Henry Rollinson frá Ástralíu
Ignacio Fideleff frá Nacional Asunción
Priestley Griffiths frá Englandi
Yvan Erichot frá Kýpur

Farnir:
Alvaro Montejo Calleja í Þór
Andri Ólafsson hættur
Arnór Gauti Ragnarsson í Breiðablik
Brian McLean til DPMM FC
Hafsteinn Briem í HK
Jónas Þór Næs til Færeyja
Mikkel Maigaard Jakobsen til Noregs
Pablo Punyed í KR
Óskar Elías Zoega Óskarsson í Þór
Renato Punyed til Noregs
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.