28.04.18 - 22:00
Gunnar Logi Gylfason
Montella rekinn frá Sevilla (Staðfest)
Annar brottreksturinn á tímabilinu

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sevilla hefur ákveðið að reka þjálfarann Vincenzo Montella frá félaginu en Montella hafði aðeins verið hjá félaginu í fjóra mánuði.
Þetta var ákveðið eftir 2-1 tap gegn Levante í gær, en það var níundi leikurinn í röð án sigurs hjá liðinu.

Montella tók við Sevilla í desember á síðast ári. Þá var aðeins liðinn mánuður frá því að hann var rekinn frá AC Milan.
Tíma hans hjá Sevilla verður helst minnst fyrir að slá Man Utd út í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en einnig kom hann liðinu í úrslit Copa del Rey, spænska konungsbikarsins, þar sem liðið var gjörsigrað af Barcelona, 5-0.