28.05.18 - 20:05
Ingólfur Páll Ingólfsson
Marius Wolf til Borussia Dortmund (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur náð samkomulagi við Eintrach Frankfurt um kaup á Marius Wolf. Leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning.
Wolf, sem er 23 ára gamall skoraði 5 mörk og lagði upp 9 fyrir Eintrach Frankfurt á síðasta tímbili. Þá spilaði hann lykilhlutverk í sigri liðsins á Bayern Munchen í úrslitum Þýska bikarsins fyrr í mánuðinum.
Wolf er ætlað að berjast um sæti við Christian Pulilsic og Andrij Yarmolenko hægra meginn á miðjunni en hann getur einnig leyst af ýmsar stöður á vellinum, til dæmis hægri bakvörð.
Leikmaðurinn stoppar því stutt við hjá Eintracht Frankfurt en hann gekk gekk til liðs við liðið á lánssamningi frá Hannover síðastliðið sumar. Félagið keypti hann endanlega í janúar á þessu ári.