Fotbolti.net
28.05.18 - 22:00
Ingólfur Páll Ingólfsson

Pablo Machin tekur við Sevilla (Staðfest)

Pablo Machin tekur við Sevilla (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla hefur tilkynnt um ráðningu stjórans Pablo Machin sem tekur við liðinu af Vincenzo Montella sem var rekinn í apríl.
Pablo Machin stýrði liði Girona á síðustu leiktíð og skilaði liðinu í 10. sæti deildarinnar. Liðið var að leika í spænsku úrvalsdeildinni í fyrsta skiptið.

Machin skrifar undir tveggja ára samning við Sevilla sem endaði í umspilssæti um þátttökurrétt í evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Joaquin Caparros hafði tímabundið stýrt liðinu eftir brottrekstur Montella en hafði ekki áhuga á að taka við líðinu.

Girona þarf nú að leita sér að nýjum stjóra og hefur verið orðað við bæði Mikel Arteta og Domenec Torrent, aðstoðarþjálfara Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.