Fotbolti.net
28.05.18 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stoke lánar 18 milljón punda mann til Hannover (Staðfest)

Wimmer er mættur til Hannover.

Wimmer er mættur til Hannover.

Canon

Mynd: Hannover 96

Stoke City hefur lánað austurríska varnarmanninn Kevin Wimmer til Hannover 96 í Þýskalandi. Lánssamningurinn tekur gildi í sumar og verður gildur út næstu leiktíð.

Hinn 25 ára gamli Wimmer <a href=\"http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=237372\" target=\"_blank\">samdi við Stoke síðasta sumar, hann kom frá Tottenham fyrir 18 milljónir punda</a>.
Hann náði þó ekki að heilla fólk hjá Stoke og spilaði aðeins 19 leiki fyrir félagið á sinni fyrstu leiktíð þar.

Eftir að Paul Lambert tók við liðinu kom hann ekkert við sögu er Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Hannover hefur forkaupsrétt á leikmanninum á meðan lánssamningnum stendur.

Gary Rowett tók við Stoke á dögunum. Gera má ráð fyrir því að nokkrir leikmenn fylgi á eftir Wimmer og fari frá félaginu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.