28.05.19 - 09:21
Elvar Geir Magnússon
Gattuso hættur hjá AC Milan (Staðfest)

Gennaro Gattuso.

Mynd: Getty Images

Gennaro Gattuso.

Mynd: Getty Images
Gennaro Gattuso hefur tilkynnt að hann sé hættur sem þjálfari AC Milan.
Hann segist hafa hugsað málið vandlega og ákveðið að taka „þessa erfiðu ákvörðun".
AC Milan mistókst að komast í Meistaradeildina og Gattuso hefur ákveðið að stíga til hliðar eftir 18 mánaða starf.

„Þessir mánuðir hafa verið ógleymanlegir og ég hef lagt alla mína ástríðu í þá. Ég gef eftir laun mín síðustu tvö ár samningsins því saga mín hjá AC Milan hefur aldrei snúist um peninga," segir gattuso.
AC Milan vann 40 leiki, gerði 22 jafntefli og tapaði 20 af 82 leikjum sínum undir stjórn Gattuso.
Þá er Leonardo, yfirmaður íþróttamála, einnig hættur störfum.