28.05.19 - 15:18
Elvar Geir Magnússon
Villas-Boas tekur við Marseille (Staðfest)

Andre Villas-Boas.

Mynd: Getty Images

Andre Villas-Boas.

Mynd: Getty Images
Marseille hefur ráðið Andre Villas-Boas sem nýjan þjálfara en hann tekur við af Rudi Garcia.
Villas-Boas, sem er 41 árs í dag, var á sínum tíma talinn einn efnilegasti þjálfari heims en hann var aðstoðarmaður Jose Mourinho áður en hann tók við Porto.
Villas-Boas vann þrjá titla með Porto 2011, þar á meða Evrópudeildina en hann varð þá yngsti þjálfarinn til að stýra liði til sigurs í UEFA keppni.

Árangur hans í Portúgal gerði það að verkum að hann tók við Chelsea en entist þar aðeins í sjö mánuði áður en hann tók við Tottenham.
Eftir 18 mánuði hjá Tottenham var hann ráðinn til Zenit í Pétursborg þar sem hann stýrði liðinu til rússneska meistaratitilsins.
Hann hefur verið án atvinnu síðan hann yfirgaf kínverska félagið Shanghai SIPG en á síðasta ári tók hann þátt í Dakar rallíinu en þurfti að hætta keppni snemma vegna áreksturs.
Marseille hafnaði í fimmta sæti frönsku deildarinnar og náði því ekki Evrópusæti.