Fotbolti.net
28.05.19 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Xavi tekur við katörsku meisturunum (Staðfest)

Xavi.

Xavi.

Canon

Mynd: Getty Images

Xavi, fyrrum leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, hefur verið ráðinn þjálfari Al Sadd í Katar.

Xavi er 39 ára og átti magnaðan feril en tilkynnti í upphafi mánaðarins að skórnir væru komnir í hilluna. Hann hefur verið leikmaður Al Sadd síðan 2015.

Xavi vann HM með Spáni 2010 og þá vann hann spænska meistaratitilinn átta sinnum og Meistaradeildina fjórum sinnum með Barcelona.

<i>„Það hafa verið forréttindi að afreka það sem ég hef gert síðustu tvo áratugi,"</i> segir Xavi sem vill í þjálfun spila fótbolta á borð við þann sem Barcelona hefur verið þekkt fyrir.
Al Sadd vann meistaratitilinn í Katar á nýliðnu tímabili. Heimir Hallgrímsson þjálfar Al Arabi sem hafnaði í sjötta sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.