Jón Daði Böðvarsson var utan leikmannahóps Selfoss um helgina þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Dalvík/Reyni í 2. deild.
Hlaðvarpið Harkið greindi frá því að Jón hafi verið sendur heim af æfingu og í kjölfarið var hann ekki valinn í leikmannahóp Selfyssinga.
Hlaðvarpið Harkið greindi frá því að Jón hafi verið sendur heim af æfingu og í kjölfarið var hann ekki valinn í leikmannahóp Selfyssinga.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Óla Stefáns Flóventssonar, þjálfara Selfoss, og spurði hann út í fjarveru Jóns Daða.
„Ég ætla ekki að fara neitt ofan í nein persónuleg mál. Hann var ekki með vegna persónulegra ástæðna. En ég ætla ekki að fara neitt nánar út í þetta að svo stöddu,“ segir Óli Stefán í samtali við Fótbolta.net.
Spurður um hvort að fjarvera Jóns hafi verið tímabundin eða ekki segir Óli Stefán lítið geta sagt til um það. „Tíminn verður að leiða það í ljós,“ sagði Þjálfari Selfyssinga.



