Fotbolti.net
28.06.17 - 19:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Diedhiou dýrastur í sögu Bristol City (Staðfest)

Diedhiou kemur frá Angers í Frakklandi.

Diedhiou kemur frá Angers í Frakklandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Bristol City hefur slegið félagsmet sitt með því að kaupa senegalska sóknarmanninn Famara Diedhiou fyrir 5,3 milljónir punda.

Hann kemur til Bristol frá franska félaginu Angers. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Bristol City.
Síðasti leikmaðurinn sem átti metið kom einnig til Bristol frá Angers. Sá heitir Jonathan Kodija og er í dag liðsfélagi Birkis Bjarnasonar hjá Aston Villa. Bristol borgaði 3,25 milljónir punda fyrir hann árið 2015.

„Hann verður mikilvægur leikmaður fyrir okkur,\" sagði Lee Johnson, stjóri Bristol við heimasíðu félagsins. „Hann er kraftmikill, hann er fljótur. Núna er hans tími kominn.\"

Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður Íslands, var að klára sitt fyrsta tímabil með Bristol City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.