Fotbolti.net
28.06.17 - 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jonathan Hendrickx til Leixoes S.C. (Staðfest)

Hendrickx er farinn til Portúgals.

Hendrickx er farinn til Portúgals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Bakvörðurinn Jonathan Hendrickx, sem hefur leikið með FH undanfarin ár, er á leið til Portúgals. Þar mun hann ganga í raðir Leixões S.C., sem leikur í næst efstu deild Portúgals.

Það var staðfest á dögunum að Hendrickx væri á förum frá FH. Hann fer strax út til Portúgals.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var spurður út í það eftir leik gegn ÍBV á dögunum og þar staðfesti hann að leikmaðurinn væri á förum frá Fimleikafélaginu.

„Hann er væntanlega að fara til liðs erlendis,\" sagði Heimir þegar hann var spurður út í málið.

„Við reiknum með því að það verði klárað á næstunni.\"

Nú er þetta klappað og klárt. Hendrickx, sem er fæddur árið 1993, kom fyrst til FH í júlí 2014 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan þá. Hann spilaði 19 leiki þegar liðið varð Íslandsmeistari síðasta sumar.

Leixões fór í umspil um að halda sæti sínu í næst efstu deild Portúgals, en þeir náðu að halda sér uppi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.