28.06.18 - 11:15
Ingólfur Páll Ingólfsson
Bobby Reid til Cardiff City (Staðfest)

Bobby Reid er kominn til Cardiff.

Mynd: Getty Images

Bobby Reid er kominn til Cardiff.

Mynd: Getty Images
Penninn er heldur betur á lofti á skrifstofu Cardiff City þessa stundina en félagið hefur staðfest kaup á sínum öðrum leikmanni í dag.
Bobby Reid hefur gengið til liðs við félagið frá Bristol City. Hinn 25 ára gamli Reid skrifar undir samning til 2022.
Reid skoraði 19 mörk í 46 leikjum fyrir Bristol City á síðasta tímabili. Framherjinn gekkst undir læknisskoðun í gær og eru önnur kaup félagsins í dag en fyrir hafði markvörðurinn Alex Smithies skrifað undir samning.
Cardiff hefur nú eytt nálægt 28 milljónum punda í sumarglugganum en Aron Einar og félagar eru staðráðnir í að halda sæti sínu í deild þeirra bestu á næsta tímabili.