28.06.18 - 17:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fór illa með Man Utd á sínum tíma - Er nú á leið til félagsins

Lee Grant.

Mynd: Getty Images

Lee Grant.

Mynd: Getty Images
Manchester United er í viðræðum við Stoke um félagaskipti markvarðarins Lee Grant. Þetta herma heimildir Sky Sports sem er frekar áreiðanlegur miðill.
Grant er orðinn 35 ára gamall en talið er að Stoke sé tilbúið að hleypa honum til United á frjálsri sölu.
Hann kemur til með að vera þriðji markvörður Man Utd á eftir David de Gea og Sergio Romero. Joel Pereira, sem var þriðji markvörður á síðasta tímabili, fær væntanlega að fara á láni.

Viðræður á milli United og Stoke eru ekki komnar mjög langt en þeim miðast vel áfram.
Stoke fékk Grant frá Derby County í sumarið 2016 vegna meiðsla Jack Butland. Grant lék 30 leiki á því tímabili en spilaði aðeins þrjá leiki þegar Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Grant átti einn sinn besta leik á ferlinum, ef ekki þann besta, í október 2016 þegar Stoke gerði jafntefli við Man Utd á Old Trafford.