Fotbolti.net
28.06.18 - 09:16
Ingólfur Páll Ingólfsson

Markmaðurinn Alex Smithies til Cardiff (Staðfest)

Alex Smithies mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Alex Smithies mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar og félagar í Cardiff City eru byrjaðir að þétta raðirnar fyrir úrvalsdeildina og voru nú rétt í þessu að tilkynna um kaup á markmanninum Alex Smithies sem gengur til liðs við félagið frá QPR.
Þessi 28 ára gamli markmaður gengur til liðs við Cardiff og skrifar undir samning til 2021. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Smithies hóf ferilinn hjá Huddersfield þar sem hann spilaði 275 leiki áður en hann skipti yfir til QPR í ágúst 2015 þar sem hann hefur verið síðan. Honum er nú ætlað að berjast við Neil Etheridge um markvarðarstöðuna.

Það er einnig nóg um að vera á skrifstofu Cardiff City í dag en reiknað er me því að framherjinn Bobby Reid muni ganga til liðs við félagið frá Bristol City síðar í dag.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.