28.06.18 - 14:47
Ingólfur Páll Ingólfsson
Wayne Rooney til DC United (Staðfest)

Rooney hefur yfirgefið Gylfa og félaga í Everton.

Mynd: Getty Images

Wayne Rooney hefur yfirgefið Everton og er genginn til liðs við DC United í MLS deildinni.
Rooney hefur verið orðaður við DC United og nú hefur Everton tilkynnt um félagsskiptin. Leikmaðurinn hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við MLS félagið. Hann segist ánægður með að félagsskiptin séu gengin í gegn.
„Að fara til Ameríku og í MLS deildina uppfyllir annan draum fyrir mig. Ég hef hungrið sem þarf til þess að ná árangri hér og mun gefa D.C. 100%, eins og ég hef gert fyrir öll þau lið sem ég hef spilað fyrir,\" sagði Rooney.
„Þegar ég kom í heimsókn fyrr í sumar var ég mjög hrifinn af öllum sem ég hitti hjá félaginu og auðvitað nýja Audi vellinum. Nú get ég ekki beðið eftir því að komast á völlinn í United treyju og hitta liðsfélaga mína svo að við getum skilað árangri.”
Rooney mun spila í treyju númer 9 og er mikil spennan innan félagsins með að hafa fengið einn besta leikmann í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til félagsins.

🤝 | @WayneRooney has today joined @dcunited.
— Everton (@Everton) June 28, 2018
Goodbye and good luck, Wayne! 💙
More ➡️ https://t.co/yH7jRZelWC pic.twitter.com/41EFUFUZFC