„Við getum verið stoltar af frammistöðunni. Við vorum óöruggar fyrstu 10-15 mínúturnar en unnum okkur betur inn í leikinn þegar á leið. Mér fannst við ekki endilega eiga skilið að tapa,“ sagði markvörðurinn Lauren Amie Allen sem átti stórleik fyrir Tindastól í 1-0 tapi gegn KR í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: KR 1 - 0 Tindastóll
„Við héldum áfram að vaxa þegar leið á leikinn og mér fannst við betra liðið undir lokin. Við getum farið héðan stoltar. Tökum það jákvæða með okkur og nýtum það til góðs í deildinni,“ sagði Lauren sem var ánægð með eigin frammistöðu.
„Það er alltaf gott að fara af velli vitandi að maður stóð sig vel. Ég er stolt af minni frammistöðu.“
Nú þegar Tindastóll er úr leik í bikarnum fer öll athygli yfir á Inkasso-deildina þar sem liðið hefur byrjað vel.
„Við erum í 4. Sæti og ætlum að halda áfram. Við höfum verið óheppnar í tapleikjunum tveimur. Höfum verið í meiðslavandræðum en það truflar okkur ekki. Við erum með nóg af leikmönnum sem eru tilbúnar til að spila.“
„Við getum skorað mörk. Við vitum hverju við erum góðar í og getum vonandi endað ofarlega í deildinni,“ sagði markvörðurinn öflugi meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.





















