Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júní 2022 09:25
Elvar Geir Magnússon
Man Utd að ná samkomulagi við Barcelona um De Jong
De Jong færist nær Old Trafford.
De Jong færist nær Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að samkomulag milli Manchester United og Barcelona um kaupverðið á hollenska miðjumanninum Frenkie de Jong sé nánast í höfn.

Talað er um 56 milljóna punda kaupverð sem gæti hækkað enn frekar eftir árangurstengdum greiðslum.


Ekki er búist við því að United verði í vandræðum með að semja við De jong um kaup og kjör.

De Jong er 25 ára og talið er að hann skrifi undir fimm ára samning á Old Trafford þar sem menn vonast eftir því að hann komi með sköpunarmátt á miðsvæðið sem hefur vantað.


Athugasemdir
banner
banner