28.07.19 - 23:33
Arnar Daði Arnarsson
Alexander Freyr lánaður í HK (Staðfest)

Alexander í leik með Haukum í sumar.

Mynd: Hulda Margrét

Alexander í leik með Haukum í sumar.

Mynd: Hulda Margrét
Miðvörðurinn, Alexander Freyr Sindrason hefur verið lánaður í HK frá Inkasso-liði Hauka. Frá þessu greinir HK á Facebook síðu sinni nú rétt í þessu.
Þar kemur fram að Alexander Freyr hafi æft með liði HK undanfarna daga en Alexander var ekki í leikmannahópi Hauka í sigri gegn Fram á fimmtudaginn síðastliðinn.

Alexander Freyr sem er uppalinn hjá Haukum er 26 ára gamall miðvörður sem hefur spilað yfir 100 leiki í næst efstu deild og skorað í þeim sex mörk.
Alexander hefur spilað 14 leiki með Haukum í sumar en hann sleit krossband fyrir tveimur árum og lék því ekkert með Haukum í Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð.
HK situr í 8. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 17 stig eftir þrettán leiki en liðið mætir Stjörnunni í Kórnum annað kvöld.