Fotbolti.net
28.07.19 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal selur efnilegan leikmann til Þýskalands (Staðfest)

Xavier Amaechi í leik með Arsenal

Xavier Amaechi í leik með Arsenal

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska B-deildarfélagið Hamburger SV keypti í gær enska framherjann Xavier Amaechi frá Arsenal.
Amaechi, sem er aðeins 18 ára gamall, þykir afar efnilegur og hafnaði hann meðal annars liðum á borð við Barcelona, Inter, Bayern München og Herthu Berlín.

Hann átti eitt ár eftir af samning sínum við Arsenal en hefur nú ákveðið að reyna fyrir sér í þýsku B-deildinni.

Hann gerði fjögurra ára samning við Hamburger SV en kaupverðið er 2,25 milljónir punda.

Hann fær treyjunúmerið 17 hjá Hamburger SV en á enn eftir að spila fyrir aðallið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.