28.07.19 - 11:28
Brynjar Ingi Erluson
Bróðir Pogba semur við lið í nágrenni við Madríd (Staðfest)

Mathias Pogba er mættur til Spánar

Mynd: Getty Images

Mathias Pogba er mættur til Spánar

Mynd: Getty Images
Mathias Pogba, bróðir Paul Pogba hjá Manchester United, er búinn að semja við spænska D-deildarliðið CD Manchego.
Mathias er 28 ára gamall en hann hefur leikið með félögum á borð við Wrexham, Crewe Alexandra, Pescara, Crawley Town, Sparta Rotterdam og nú síðast Tours í Frakklandi.
Hann hefur ákveðið að söðla um og er nú búinn að semja við spænska D-deildarliðið CD Manchego.
CD Manchego er staðsett í nágrenni við Madríd en bróðir hans, Paul, hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid í sumar og ýtir þetta enn frekar undir þær sögusagnir að hann sé á leið þangað.

Bienvenido a tu nueva casa @mathiaspog pic.twitter.com/MjRSJcievQ
— C.D. Manchego Ciudad Real (@CDManchegoCReal) July 28, 2019