28.07.19 - 10:28
Brynjar Ingi Erluson
Harvey Elliott til Liverpool (Staðfest)

Harvey Elliott er búinn að semja við Liverpool

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool staðfesti í dag kaupin á enska vængmanninum Harvey Elliott en hann kemur frá Fulham.
Elliott, sem er aðeins 16 ára gamall, er yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Leikmaðurinn kom inná sem varamaður í enska deildabikarnum gegn Millwall þá aðeins 15 ára gamall en undir lok síðasta tímabils varð hann yngsti leikmaðurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Hann kom þá inná á 88. mínútu gegn Wolves, aðeins 16 ára og 30 daga gamall.
Elliott hefur verið orðaður lengi við Liverpool en nú er hann búinn að gera langtímasamning við félagið. Kaupverðið er ekki gefið upp en hann verður í leikmannahópnum sem mætir Napoli í Edinborg síðar í dag.

Welcome to #LFC, Harvey Elliott 🙌 https://t.co/FaQHrTf2rt
— Liverpool FC (@LFC) July 28, 2019