Fotbolti.net
28.07.19 - 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sveinn Margeir í KA (Staðfest) - Lánaður aftur í Dalvík/Reyni

Sveinn Margeir í KA (Staðfest) - Lánaður aftur í Dalvík/Reyni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góður dagur fyrir KA. Liðið var að vinna FH í Pepsi Max-deild karla og var að bæta við sig nýjum leikmanni.

Smelltu hér til að lesa nánar um sigurinn á FH.
Sveinn Margeir Hauksson var að skrifa undir samning hjá KA. Blaðamaðurinn Skapti Hallgrímsson segir frá þessu á Twitter.

„Skúbb að norðan: Sveinn Margeir Hauksson, 17 ára fótboltamaður frá Dalvík, skrifaði rétt í þessu undir þriggja ára samning við KA - á Akureyrarvelli eftir 1:0 sigur á FH. Hann leikur þó áfram með Dalvík út sumarið," skrifaði Skapti.

Við sögðum frá því í síðustu viku að Sveinn Margeir væri eftirsóttur hjá félögum í Pepsi Max-deildinni. Nokkur félög lögðu fram tilboð í hann, en KA vann baráttuna.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið í lykilhlutverki hjá Dalvík/Reyni undanfarin tímabil. Hann er uppalinn á Dalvík, en hefur einnig verið á mála hjá KA.

Í sumar hefur hann spilað 13 leiki með Dalvík/Reyni í 2. deild karla. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.