Fjölnir hefur kallað Vilhjálm Yngva Hjálmarsson úr láni frá Þrótti. Hann fór á láni í upphafi tímabils og spilaði tíu leiki með Þrótti í Lengjudeildinni.
Vilhjálmur er nítján ára miðvörður sem á að baki fimmtán leiki fyrir unglingalandsliðin.
Vilhjálmur er nítján ára miðvörður sem á að baki fimmtán leiki fyrir unglingalandsliðin.
Fjölnir mætir Grindavík í Lengjudeildinni í kvöld og verður Vilhjálmur í leikmannahópi Fjölnis.
Leikir kvöldsins:
19:15 Fjölnir-Grindavík (Extra völlurinn)
19:15 Kórdrengir-Víkingur Ó. (Domusnovavöllurinn)
20:00 Vestri-Grótta (Olísvöllurinn)
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson hefur verið kallaður til baka til Fjölnis úr láni frá @throtturrvk Hann verður í leikmannahópi Fjölnis í kvöld kl. 19:15 gegn @umfg í Lengjudeild karla #FélagiðOkkar #Fotboltinet pic.twitter.com/4EKQsiOMUr
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) July 28, 2021
Athugasemdir