Fotbolti.net
28.07.23 - 12:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kaflaskiptur dagur hjá Hibernian: Fyndið myndband og hræðileg úrslit

Stuðningsmenn Hibernian voru trylltir í gær.

Stuðningsmenn Hibernian voru trylltir í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Það má segja að það hafi verið skin og skúrir hjá skoska félaginu Hibernian í gær.
Dagurinn byrjaði vel hjá Hibernian því félagið tilkynnti um að það hefði fengið varnarmanninn Will Fish á láni frá Manchester United.

Hibernian tilkynnti um Fish með afar skemmtilegu myndbandi sem sló í gegn á samfélagsmiðlum. Félagið notaði stórskemmtilegt atriði úr sjónvarpsþættinum Inbetweeners til að tilkynna um félagaskiptin og vakti það mikla lukku. Myndbandið má sjá hér að neðan.

En um kvöldið spilaði liðið gegn Inter Club d'Escaldes frá Andorra í forkeppni Sambandsdeildarinnar og tapaði þar mjög óvænt 2-1. Þetta eru ein verstu úrslit í sögu Hibernian en félagið fær tækifæri til að bæta upp fyrir þau.

Stuðningsmenn félagsins sem gerðu sér ferð til Andorra voru brjálaðir og létu leikmenn liðsins heyra það þegar þeir gengu til búningsklefa. Myndband af því má einnig sjá hér fyrir neðan.

Þess má geta að Víkingur spilaði gegn Inter Club d'Escaldes í forkeppni Meistaradeildarinnar í fyrra og vann þar nauman sigur.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.