28.07.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alma Mathiesen spáir í 13. umferð Bestu kvenna

Alma Mathiesen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alma spáir sínum gömlu félögum í FH sigri.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Alma Mathiesen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir var aðeins með einn réttan þegar hún spáði í síðustu umferð Bestu deildar kvenna.
Alma Mathiesen, leikmaður HK í Lengjudeildinni, stefnir á að gera betur en það en hún spáir í leiki umferðarinnar sem hefst í kvöld.
Alma Mathiesen, leikmaður HK í Lengjudeildinni, stefnir á að gera betur en það en hún spáir í leiki umferðarinnar sem hefst í kvöld.
Þróttur R. 1 - 2 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Víkingar koma gíraðar inn í leikinn staðráðnar í að koma sér upp úr fallsæti. Jafn leikur á milli tveggja góðra liða. Kristín Erla skorar sigurmark Víkings með skalla á lokamínútunum.
Stjarnan 2 - 1 Grindavík/Njarðvík (19:15 í kvöld)
Býst við fjörugum og opnum leik, þar sem bæði lið reyna að sækja sigurinn. Verður mikið af færum en ekki endilega mörg mörk skoruð. Úlfa Dís setur tvö og tryggir Stjörnunni sigurinn.
ÍBV 1 - 4 FH (18:00 á morgun)
Mínar konur í FH búnar að vera á eldi í síðustu leikjum. Sé fá lið taka stig af FH í þessum gír, þær munu stjórna þessum leik frá fyrstu mínútu og vinna þægilegan 4-1 sigur.
Breiðablik 3 - 1 Þór/KA (18:00 á morgun)
Blikar koma með mikið sjálfstraust inn í leikinn eftir sigurinn á móti Val. Þór/KA mun verjast vel en gæðin í sóknarlínu Blika mun vinna leikinn. Hrafnhildur Ása, Agla María og Olla með mörkin.
Fram 1 - 0 Valur (19:15 á morgun)
Held að þetta verði lokaður leikur þar sem bæði lið leggja áherslu á að verja markið sitt. Fram skorar sigurmarkið í seinni hálfleik og tengir fjórða sigurinn í röð í deildinni.
Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
Sædís Rún (1 réttur)
Thelma Karen (1 réttur)
Jóhann Fjalar (1 réttur)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 12 | +25 | 29 |
| 2 | Breiðablik | 12 | +22 | 27 |
| 3 | Stjarnan | 12 | +5 | 21 |
| 4 | ÍBV | 12 | -1 | 20 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 12 | -7 | 15 |
| 6 | Þróttur R. | 12 | -5 | 13 |
| 7 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 8 | Þór/KA | 12 | -5 | 12 |
| 9 | Valur | 12 | -10 | 10 |
| 10 | Víkingur R. | 12 | -12 | 10 |