28.07.26 - 21:21
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Allt jafnt í Laugardal og Garðabæ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveimur leikjum var að ljúka í Bestu deild kvenna þar sem Þróttur gerði jafntefli við Víking í Reykjavíkurslag á meðan Stjarnan fékk skemmtilega nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur í heimsókn.
Þróttur byrjaði betur og náði forystunni þegar Kayla Marie Rollins skallaði fyrirgjöf Jelenu Tinnu Kujundzic í netið á 26. mínútu. Kayla átti magnaðan skalla og reyndist markið keimlíkt marki Mexíkóans markaóða Jared Borgetti frá HM 2002.
Það var lítið að frétta í leiknum eftir opnunarmark heimakvenna. Bæði lið fengu hálffæri en boltinn rataði ekki í netið fyrr en á 71. mínútu, þegar gestunum úr Fossvogi tókst að jafna eftir mikið klafs í vítateig Þróttar.
Það færðist aukin trú í lið Víkings eftir jöfnunarmarkið og fengu gestirnir færi til að stela sigrinum en nýttu ekki, svo lokatölur urðu 1-1. Þróttur er áfram í neðri hluta deildarinnar, nú með 14 stig eftir 13 umferðir. Víkingur fer upp úr botnsætinu en er áfram í fallsæti, með 11 stig.
Stjarnan fékk á sama tíma tvö fyrstu færin gegn Grindavík/Njarðvík en gestirnir tóku stjórn á leiknum eftir það.
Nýliðarnir komust í mikið af góðum stöðum og fengu nokkur góð færi en tókst ekki að nýta þau, á meðan Stjörnukonur voru hættulegar í skyndisóknum.
Það var minna um opin færi í síðari hálfleiknum en bæði lið komust þó í færi til að skora. Boltinn rataði aldrei í netið svo niðurstaðan er markalaust jafntefli.
Stjarnan er áfram í þriðja sæti, með 22 stig eftir 13 umferðir. Grindavík/Njarðvík er með 16 stig.
Þróttur R. 1 - 1 Víkingur R.
1-0 Kayla Marie Rollins ('26 )
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir ('71 )
Lestu um leikinn
Stjarnan 0 - 0 Grindavík/Njarðvík