Fotbolti.net
28.07.26 - 11:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Siggi Höskulds blístraði og stýrir ekki næsta leik Þórs

Siggi Höskulds kominn í bann.

Siggi Höskulds kominn í bann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, fékk að líta sitt fjórða gula spjald í sumar þegar Þór heimsótti KA í nágrannaslag í gær.

Siggi, eins og hann er yfirleitt kallaður, vildi að Þórður Þorsteinsson Þórðarson, dómari leiksins, myndi gera eitthvað meira en einungis dæma brot á leikmann KA, Danijel Dejan Djuric, fyrir að rífa í Gyrði Hrafn Guðbrandsson á 49. mínútu leiksins.

Siggi blístraði og Þórði mislíkaði það. Dómarinn leit strax upp, joggaði í átt að hliðarlínunni og lyfti gula spjaldinu. Þjálfarinn var sýnilega ekki sáttur við að ekki hafi þurft meira til að fá spjald.
Kennie tuðaði sig í bann
TENGT EFNI

Kennie tuðaði sig í bann

Siggi verður ekki á hliðarlínunni eftir viku þegar Breiðablik kemur í heimsókn á VÍS völlinn vegna leikbanns. Fyrr í sumar hafði aðstoðarmaður hans, Eiður Benedikt Eiríksson, tekið út leikbann fyrir fjögur gul spjöld.

Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, fékk þá sitt fjórða gula spjald í sumar og verður ekki með KA gegn Keflavík í Keflavík eftir átta daga.

17. umferðin í Bestu
laugardagur 1. ágúst
14:00 ÍBV-Fram (Hásteinsvöllur)

þriðjudagur 4. ágúst
18:30 Þór-Breiðablik (VÍS völlurinn)
*19:15 ÍA-Víkingur R. (ELKEM völlurinn)
**19:15 Valur-Stjarnan (N1-völlurinn Hlíðarenda)

miðvikudagur 5. ágúst
18:00 Keflavík-KA (HS Orku völlurinn)
19:15 FH-KR (Kaplakrikavöllur)

*Verður færður, dagsetning ákveðin eftir leik Hapoel og Víkings á miðvikudag.
**Verður færður ef annað hvort liðið, eða þau bæði, fara áfram úr Evrópueinvígum sínum.
Jakob fékk sitt fjórða gula spjald í sumar.

Jakob fékk sitt fjórða gula spjald í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.