Fotbolti.net
28.07.26 - 16:34
Kári Snorrason

Tveggja leikja bann Sowe kom Linta á óvart - Spenntur fyrir fyrstu Þjóðhátíðinni

Bannið kom Linta á óvart.

Bannið kom Linta á óvart.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe, framherji ÍBV, var ekki til taks fyrir Eyjamenn í gær er liðið tapaði 1-0 gegn Breiðabliki á Eikarvellinum í Kópavogi í gær.

Gambíumaðurinn fékk að líta rauða spjaldið fyrir að reka höfuðið í Birgi Baldvinsson í leik gegn KA fyrir rúmri viku síðan. Þetta var hans fyrsta rauða spjald í sumar en hann fær auka leik í bann fyrir ofsafengna framkomu.
Omar Sowe í tveggja leikja bann - ÍBV áfrýjar
TENGT EFNI

Omar Sowe í tveggja leikja bann - ÍBV áfrýjar

„Ég sá þetta og mér fannst ekkert sérstakt vera í þessu. Þetta kom mér á óvart að þeir hefðu gefið honum tveggja leikja bann,“ sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV í viðtali við Fótbolta.net í gær.

Hann mun sömuleiðis ekki verða til taks gegn Fram í næstu umferð sem er Þjóðhátíðarleikurinn.

Þá munu Eyjamenn endurheimta Milan Tomic sem var í leikbanni í gær eftir að hafa fengið sitt sjöunda gula spjald á tímabilinu gegn KA.

Linta hlakkar til að taka þátt í Þjóðhátíðarleiknum en hann sækir hátíðina í fyrsta sinn, rétt eins og Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sem sagði frá því í viðtali við Sýn á dögunum.

„Þetta verður mín fyrsta Þjóðhátíð og fyrsti leikur sem ég tek þátt á meðan hátíðinni stendur. Ég er mjög spenntur að koma til baka í þennan leik eftir þetta tap,“ sagði Linta í gær.
Verður í banni gegn Fram í Þjóðhátíðarleiknum.

Verður í banni gegn Fram í Þjóðhátíðarleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrsti Þjóðhátíðarleikur Rúnars.

Fyrsti Þjóðhátíðarleikur Rúnars.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Linta: Eftir markið þá var þetta kannski aðeins of mikill eltingarleikur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.