Fotbolti.net
28.07.26 - 18:13
Ívan Guðjón Baldursson

Real skoraði fjögur - McBurnie hjálpaði Hull að sigra

Real skoraði fjögur - McBurnie hjálpaði Hull að sigra
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid mætti Leganés í æfingaleik í dag og skóp þægilegan sigur þar sem Federico Valverde, Gonzalo García og Franco Mastantuono komust á blað.
Valverde og García skoruðu í fyrri hálfleik áður en Naim García minnkaði muninn fyrir Leganés.

Argentínski táningurinn Mastantuono tvöfaldaði forystuna á ný í síðari hálfleik áður en Rubén Pulido varð fyrir því óláni að skora síðasta mark leiksins í eigið net, svo lokatölur urðu 4-1.

Þetta var fyrsti leikur Real Madrid undir stjórn José Mourinho á undirbúningstímabilinu. Framundan eru æfingaleikir gegn Fiorentina, Ferencvaros og Deportivo La Coruna.

Byrjunarlið Real Madrid: Lunin, Trent, Asencio, Huijsen, Carreras, Camavinga, Valverde, Mastantuono, Guler, Ciria, Garcia

Hull City, nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, lögðu þá Rizespor að velli. Oliver McBurnie og Kieran Dowell skoruðu mörkin með stuttu millibili áður en Rizespor minnkaði muninn.

Tyrkirnir komust þó ekki nær svo lokatölur urðu 1-2 fyrir Hull.

Í öðrum æfingaleikjum tapaði sádi-arabíska stórveldið Al-Ahli gegn Portimonense frá Portúgal á meðan Udinese tapaði gegn Shabab Al-Ahli frá Dúbaí.

Byrjunarlið Hull: Butland, Ajayi, Coyle, Egan, Giles, Crooks, Dowell, Slater, Kamara, McBurnie, Millar

Real Madrid 4 - 1 Leganes
1-0 Federico Valverde ('21)
2-0 Gonzalo Garcia ('25)
2-1 Naim Garcia ('36)
3-1 Franco Mastantuono ('58)
4-1 Ruben Pulido ('60, sjálfsmark)

Rizespor 1 - 2 Hull City
0-1 Oli McBurnie ('55)
0-2 Kieran Dowell ('57)
1-2 ('72)

Portimonense 2 - 0 Al-Ahli

Udinese 1 - 2 Shabab Al-Ahli Dubai
Real skoraði fjögur - McBurnie hjálpaði Hull að sigra
Canon

Mynd: EPA

Real skoraði fjögur - McBurnie hjálpaði Hull að sigra
Canon

Mynd: Hull City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.