Fotbolti.net
28.07.26 - 11:26
Elvar Geir Magnússon

Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea er að vinna í að fá Danny Welbeck, 35 ára sóknarmann Brighton, og enska miðjumanninn Jordan Henderson sem er 36 ára. Einnig er félagið að vinna í að fá Maxence Lacroix sem er 26 ára.

Það eru greinilega einhverjar breytingar á stefnu félagsins í leikmannakaupum en það hefur lagt áherslu undanfarin ár á að kaupa unga leikmenn.

Síðan 2022 hefur Chelsea unnið tvo titla, Sambandsdeild Evrópu og HM félagsliða. En það uppfyllir ekki metnað eigenda félagsins og árangurinn ekki verið eftir væntingum.

Behdad Eghbali sem er í eigendahópi Chelsea hefur sagt að félagið myndi 'fínpússa' stefnu sína og gera ákveðnar breytingar. Bæta ætti við reynslu í þann kjarna sem félagið hefur af ungum leikmönnum.
Chelsea fær grænt ljós frá Henderson og Welbeck
TENGT EFNI

Chelsea fær grænt ljós frá Henderson og Welbeck

Alonso vill blöndu af ungum leikmönnum og reynslumiklum
Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum hjá Chelsea og ef fyrri störf hans eru skoðuð þá hefur hann viljað blöndu af ungum leikmönnum og reynslumeiri.

Hann fékk fjóra leikmenn yfir 27 ára aldrei til Bayer Leverkusen 2023-24 tímabilið. Þar á meðal voru Granit Xhaka og Alejandro Grimaldo sem urðu lykilmenn þegar liðið vann Bundesliguna. Aðrir fjórir leikmenn yfir 27 ára aldri komu tímabilið þar á eftir.

Fyrr í sumar reyndi Alonso einmitt að fá Xhaka til sín á Stamford Bridge en Sunderland neitaði að selja þennan 33 ára svissneska miðjumann.

Ekki þörf á svona mörgum framherjum
Nizaar Kinsella, fréttamaður BBC, segir ljóst að Alonso vilji leikmenn til sín sem eru tilbúnir fyrir ensku úrvalsdeildina. Kaupin á Morgan Rogers, sem er 23 ára, falli undir stefnuna um kaup á yngri leikmönnum en þar sé hinsvegar leikmaður sem er búinn að sanna sig í deildinni.

„Það er ljóst að með komu Welbeck verður Chelsea með nóg af sóknarmöguleikum fyrir tímabil þar sem liðið er ekki í Evrópukeppni og þarf því ekki endilega á slíkum úrræðum að halda. Á hans aldri gæti Welbeck verið sáttur við að vera varaskeifa fyrir Joao Pedro, en það eru slæmar fréttir fyrir aðra framherja í hópnum," segir Kinsella.

„Nicolas Jackson er opinn fyrir því að fara, en Liam Delap og Emmanuel Emegha höfðu vonast til að festa sig í sessi undir stjórn Alonso."

„Alonso er að að fá það sem hann vill: reynslu og sterka persónuleika til að lagfæra það sem gekk ekki upp á síðasta tímabili og varð til þess að liðið endaði í 10. sæti í ensku úrvalsdeildinni."

Heimild: BBC

Danny Welbeck.

Danny Welbeck.

Canon

Mynd: EPA

Jordan Henderson.

Jordan Henderson.

Canon

Mynd: EPA

Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.