28.07.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Íslandsvinurinn Högh orðinn sá dýrasti í sögu Celtic (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kasper Högh er formlega orðinn leikmaður skoska stórliðsins Celtic og er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Hann kostar um 11 milljónir punda.
Högh er 25 ára gamall danskur framherji sem hefur farið á kostum í Noregi undanfarin ár og raðað inn mörkum fyrir Bodö/Glimt. Meðal annars hefur hann vakið athygli fyrir vasklega framgöngu í Meistaradeildinni.
Hann lék fimm leiki með Val á láni frá Randers sumarið 2020. Hann gekk til liðs við félagið undir lok júlí en sneri aftur til Danmerkur eftir tímabilið, en á tíma hans hjá Val tókst honum ekki að slá Patrick Pedersen út úr liðinu er það varð Íslandsmeistari.
Leiðin hefur legið hratt upp á við síðan þá. Auk þess að hafa slegið í gegn með Bodö/Glimt hefur Högh leikið fjóra A-landsleiki fyrir Danmörku og skorað eitt mark.
„Ég er svo glaður. Þetta félag á svo stóra sögu," segir Högh sem á að taka við keflinu af hinum japanska Daizen Maeda sem gekk í raðir Ispwich.