28.08.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Newcastle selur De Jong til Ajax (Staðfest)

Martraðardvöl á Englandi.

Mynd: Getty Images

Martraðardvöl á Englandi.

Mynd: Getty Images
Hollenska félagið Ajax hefur keypt framherjann Siem de Jong í sínar raðir frá Newcastle.
De Jong kom til Newcastle frá Ajax árið 2014.
Á þremur árum sínum hjá Newcastle settu meiðsli mikil strik í reikninginn hjá De Jong.
Lungu féllu saman í De Jong, hann meiddist á læri auk þess sem hann varð fyrir slæmum meiðslum á auga eftir baráttu við liðsfélaga á æfingu.

Hinn 28 ára gamli De Jong snýr nú aftur til Hollands en talið er að Ajax hafi greitt fjórar milljónir punda fyrir hann.