Fotbolti.net
28.08.17 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Patrick Roberts aftur lánaður til Celtic (Staðfest)

Roberts fær ekki séns hjá Manchester City.

Roberts fær ekki séns hjá Manchester City.

Canon

Mynd: Man City

Það er ekkert pláss fyrir hinn efnilega Patrick Roberts í stórum leikmannahópi Manchester City.

Hann hefur aftur verið lánaður til skoska liðsins Celtic.

Roberts, sem er tvítugur, skoraði 11 mörk í 47 leikjum í öllum keppnum þegar Celtic varð Skotlandsmeistari á síðasta tímabili.
Brendan Rodgers, stjóri Celtic, vildi ólmur fá hann aftur og hann fékk ósk sína uppfyllta í dag.

Manchester City keypti Roberts frá Fulham fyrir 12 milljónir punda fyrir tveimur árum. Hann hefur aðeins leikið þrjá leiki fyrir félagið og er í augnablikinu ekki inn í myndinni hjá Pep Guardiola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.