28.08.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Yarmolenko til Dortmund (Staðfest)

Yarmolenko fagnar marki gegn Íslandi í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borussia Dortmund hefur keypt kantmanninn Andriy Yarmolenko frá Dynamo Kiev á 25 milljónir evra.
Yarmolenko er úkraínskur landsliðsmaður en hann verður í eldlínunni gegn Íslandi á Laugardalsvelli í næstu viku.
Yarmolenko skoraði mark Úkraínu í 1-1 jafntefli í fyrri leiknum gegn Íslandi í fyrra.
Hinn 27 ára gamli Yarmolenko krotaði undir fjögurra ára samning við Dortmund í dag.

Yarmolenko fær treyju númer 9 hjá Dortmund en það ýtir undir sögusagnir þess efnis að Tyrkinn ungi Emre Mor sé á leið til Inter eða Torino.
Yarmolenko hefur verið í lykilhlutverki hjá Dynamo Kiev og úkraínska landsliðinu í mörg ár en hann hefur áður verið orðaður við stór félög í Evrópu.