28.08.19 - 18:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bolton bjargað (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Football Ventures hefur gengið frá kaupunum á Bolton Wanderers en tilkynnt var um kaupin fyrir stundu.
Lengi hefur verið unnið að þessum eigendaskiptum en loksins tókst að ganga frá málinu í dag.

Bolton þakkar ensku deildinni fyrir stuðninginn og skilninginn sem kerfið sýndi stöðu félagsins og þakkar einnig háskólanum og ráðhúsinu í Bolton fyrir sinn stuðning.
Bolton lýsir einnig yfir vonbrigðum að ekki tókst að bjarga Bury frá sinni slæmu stöðu en Bury var rekið úr deildinni í gærkvöldi.
Í gær var útlitið ansi slæmt hjá Bolton en þetta sögufræga lið hefur átt í viðræðum við nýja eigendur í nokkra mánuði. Football Ventures tókst þó að taka yfir félagið og bjarga því frá bottrekstri úr deildinni.
Bolton leikur í 3. efstu deild, League 1. Liðið lék síðast í efstu deild árið 2012.