Fotbolti.net
28.08.19 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Cabaye til Saint Etienne (Staðfest) - Debuchy hafði áhrif

Yohan Cabaye.

Yohan Cabaye.

Canon

Mynd: Getty Images

Yohan Cabaye, fyrrum miðjumaður Crystal Palace, hefur gengið frá eins árs samningi við Saint Etienne í frönsku úrvalsdeildinni.

Hinn 33 ára gamli Cabaye hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Al-Nasr í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum í janúar.
Cabaye var hjá Crystal Palace á árunum 2015 til 2018 en hann skoraði tíu mörk í 109 leikjum.

Mathieu Debuchy, fyrrum leikmaður Arsenal, er hjá Saint Etienne og hann sannfærði Cabaye um að koma til félagsins.

„Mathieu Debuchy er vinur minn og nærvera hans hafði áhrif í vali mínu," sagði Cabaye.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.