Fotbolti.net
28.08.19 - 06:00
Oddur Stefánsson
Ítalska deildin

Joao Mario í Lokomotiv á láni (Staðfest)

Joao Mario í Lokomotiv á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Joao Mario sem hefur leikið með Inter í ítölsku úrvalsdeildinni hefur verið lánaður til Lokomotiv Moskvu í Rússlandi.
Í samningnum er möguleiki fyrir Lokomotiv að kaupa Mario fyrir 18 milljónir evra.

Joao var himinlifandi að vera kominn yfir í rússnensku úrvalsdeildina.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn í Lokomotiv, ég talaði við vini mína sem hafa spilað hér og þeir segja andrúmsloftið innan klúbbsins mjög gott."

„Þáttaka þeirra í Meistaradeildinni á stóran hlut í ákvörðunni að koma hingað."

Joao Mario gekk í raðir Inter fyrir 45 milljónir evra frá Sporting Lissabon árið 2016, en skoraði aðeins fjögur mörk í 69 leikjum. Hann lék með West Ham á síðustu leiktí' eftir að hafa verið lánaður þangað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.