Fotbolti.net
28.09.17 - 18:03
Elvar Geir Magnússon

Pepsi kvenna: Þór/KA er Íslandsmeistari (Staðfest)

Sandra María Jessen fagnar. Til hamingju Þór/KA!

Sandra María Jessen fagnar. Til hamingju Þór/KA!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Það var ótrúleg spenna í baráttunni um Íslandsmeistaratitil kvenna í lokaumferðinni en leikjunum var að ljúka.
Fyrir nokkrum vikum voru flestir sparkspekingar búnir að bóka sigur Þórs/KA í deildinni en Akureyrarliðið fór að gefa eftir og það nýtti Breiðablik sér til að eiga möguleika fyrir lokaumferðina.

Ljóst var að Blikakonur myndu hirða Íslandsmeistaratitlinum með því að vinna Grindavík ef Þór/KA tækist ekki að vinna FH fyrir norðan.

Breiðablik vann sannfærandi sigur á Grindavík á meðan Þór/KA átti í vandræðum með að skapa sér færi lengi vel gegn FH.

Loks á 74. mínútu náði Sandra María Jessen að brjóta ísinn og nokkrum mínútum síðar bætti hin magnaða Sandra Mayor við marki og enduðu leikar 2-0.

Þór/KA tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitil eftir magnað sumar en fáir bjuggust við því fyrir tímabil að liðið myndi keppa um efsta sætið. Liðið vann titilinn síðast 2012 en það var í fyrsta sinn sem Íslandsmeistaratitill kvenna fór norður.

Þór/KA 2 - 0 FH
1-0 Sandra María Jessen (\'74)
2-0 Sandra Mayor (\'78)
Lestu nánar um leikinn

Breiðablik 4 - 0 Grindavík
1-0 Ingibjörg Sigurðardóttir (\'34, víti)
2-0 Kristín Dís Árnadóttir (\'69)
3-0 Rakel Hönnudóttir (\'72)
4-0 Selma Sól Magnúsdóttir (\'79)
Lestu nánar um leikinn

Virkilega verðskuldað, til hamingju Þór/KA! #fotboltinet pic.twitter.com/8XJZqqxsPp

— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) September 28, 2017

Viðtöl og nánari umfjöllun um leikina á leiðinni
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.