28.09.17 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ross McCormack til Melbourne City (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur lánað Ross McCormack til Melbourne City í Ástralíu fram í janúar. Daily Mail segir frá þessu.
Hinn 31 árs gamli McCormack, sem leikur í stöðu sóknarmanns, verður væntanlega kynntur hjá Melbourne á sunnudaginn.
Melbourne hefur nýtt tímabil 6. október næstkomandi.
Hinn 31 árs gamli McCormack, sem leikur í stöðu sóknarmanns, verður væntanlega kynntur hjá Melbourne á sunnudaginn.
Melbourne hefur nýtt tímabil 6. október næstkomandi.
Aston Villa keypti McCormack fyrir 12 milljónir punda á síðasta ári, en hann hefur ekki staðist þær væntingar sem gerðar voru til hans. Hann var orðaður við Sunderland áður en félagaskiptaglugginn lokaði og þá var Fenerbache líka sagt áhugasamt.
Hann kemur til með að styrkja Melbourne en þar er Warren Joyce, fyrrum varaliðsþjálfari Manchester United, við stjórnvölin. Tim Cahill, fyrrum leikmaður Everton, er einn af leikmönnum liðsins.
Hann kemur til með að styrkja Melbourne en þar er Warren Joyce, fyrrum varaliðsþjálfari Manchester United, við stjórnvölin. Tim Cahill, fyrrum leikmaður Everton, er einn af leikmönnum liðsins.
