Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. september 2019 17:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Samningur Óla Jó hjá Val ekki framlengdur (Staðfest)
Óli með Íslandsmeistarabikarinn. Hann vann hann tvisvar hjá Val.
Óli með Íslandsmeistarabikarinn. Hann vann hann tvisvar hjá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson verður ekki áfram þjálfari Vals. Þetta kom bæði fram í viðtali við hann eftir sigur gegn HK í dag og í tilkynningu sem Valur sendi frá sér eftir leikinn.

„Ég verð ekki þjálfari hérna áfram. Þetta er eins og það er í íþróttunum, menn ráða og reka. Ég var reyndar ekki rekinn, samningurinn minn var ekki framlengdur," sagði Óli í viðtali við Fótbolta.net eftir 2-0 sigur á HK í lokaumferðinni.

Óli tók við Val eftir tímabilið 2014 og hefur liðið unnið fjóra titla hjá honum og Sigurbirni Hreiðarssyni. Tveir Íslandsmeistaratitilar hafa unnist og tveir bikarmeistaratitlar. Þetta sumar var ekki gott fyrir Val og hafnaði liðið í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar.

Í viðtali við Fótbolta.net sagðist Óli vonast til þess að halda áfram í þjálfun.

Heimir Guðjónsson og Ágúst Gylfason hafa hvað mest verið orðaðir við Val.

Tilkynning Vals
Ólafur Jóhanneson lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks Vals.

Stjórn knattspyrnudeildar Vals hefur upplýst Ólaf Jóhannesson um að starfssamningur hans verði ekki endurnýjaður að loknu keppnistímabili því sem nú er að líða. Tilkynnt verður um eftirmann Ólafs innan skamms.

Ólafur varð Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 1987 og kom svo aftur á Hlíðarenda sem þjálfari haustið 2014. Undir hans stjórn varð liðið bikarmeistari 2015 og 2016 og Íslandsmeistari 2017 og 2018. Undanfarin fjögur keppnistímabil hafa því verið gjöful og árangursrík og hefur meistaraflokkur karla tekið miklum framförum undir stjórn Ólafs sem er sannarlega einn besti þjálfari íslenskrar knattspyrnusögu.

Fimm ár eru langur tími í íslenskri knattspyrnu og það er mat stjórnar knattspyrnudeildar að nú þurfi nýjar hendur að taka um stýrið. Valur stendur í mikilli þakkarskuld við Ólaf fyrir árangurinn á umliðnum árum og óskar honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Stjórn knattspyrnudeildar Vals
Óli Jó: Ég verð ekki þjálfari hér áfram
Athugasemdir
banner
banner
banner