Fotbolti.net
28.10.17 - 12:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andy Pew verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá Vestra (Staðfest)

Samningar undirritaðir.

Samningar undirritaðir.

Canon

Mynd: Getty Images

Vestri sendi í dag frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er um ráðningu á Andy Pew sem spilandi aðstoðarþjálfara.

<i>„Knattspyrnudeild Vestra hefur samið við Andrew James Pew um að vera spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla,\"</I> segir í tilkynningunni sem Vestri sendi frá sér.
Pew hefur verið lykilmaður hjá Selfossi undanfarin ár.

Pew er 36 ára gamall Englendingur sem spilaði 21 leik með Selfossi í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.

Hann ákvað eftir tímabilið að skoða aðra möguleika þar sem hann og Selfoss náðu ekki saman um nýjan samning. Hann ætlar að taka slaginn með Vestra í 2. deildinni næsta sumar.

„Stjórn meistaraflokksráðs lýsir yfir mikilli ánægju með það þjálfarateymi sem hefur verið samið við og ætlumst við til mikils af þessum reynslumiklu mönnum, en stefnan er klárlega sett á að taka næsta skref og gera atlögu að sæti í Inkasso.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.