Fotbolti.net
28.10.17 - 15:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hörður Ingi semur við ÍA (Staðfest)

Gleðin er við völd upp á Skaga.

Gleðin er við völd upp á Skaga.

Canon

Mynd: ÍA

ÍA var núna rétt í þessu að staðfesta ný félagaskipti. Hörður Ingi Gunnarsson er kominn til félagsins frá FH.

Hörður skrifaði undir þriggja ára samning við Skagamenn, samningurinn rennur út árið 2020.
Hörður er uppalinn hjá FH, en síðastliðið sumar spilaði hann með Víkngi Ó. í Pepsi-deildinni fyrri hlutann og HK í Inkasso-deildinni seinni hlutann. Hann spilaði sjö leiki í Pepsi-deildinni með Ólsurum og 10 leiki með HK í Inkasso-deildinni í sumarm

„ÍA fagnar komu Harðar á Skagann og telur að hann eigi eftir að leika lykilhlutverk í því uppbyggingarstarfi sem framundan er við koma liðinu aftur í deild þeirra bestu,\" segir í fréttatilkynningu Skagamanna.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, þekkir Hörð vel eftir að hafa unnið með honum hjá HK í sumar.

„Það eru gleðitíðindi að fá Hörð Inga til félagsins. Hörður er hörku leikmaður sem styrkir okkur mikið. Hann er líka með mikinn metnað til að ná langt í fótbolta og það helst í hendur við það sem við ætlum okkur hérna á Skaganum,\" sagði Jóhannes Karl en Hörður Ingi er líka mjög spenntur.

„Ég er gríðarlega ánægður og þakklátur fyrir þetta skref. Ég hlakka óendanlega til að fá að taka þátt í metnaðarfullri vegferð hjá félagi sem hefur svo ríka sögu, geggjaða umgjörð og mikið af frábæru fólki sem vill leggja sína orku í að verða meðal þeirra bestu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.