Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Undarlegt sjálfsmark í gríska bikarnum
Þessi mynd tengist fréttinni ekki beint
Þessi mynd tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Getty Images
Gríska liðið Volos er komið áfram í gríska bikarnum eftir 3-1 sigur á Panserraikos en annað mark liðsins er þó umtalað í Grikklandi.

Jafnræði var með liðunum og voru þau bæði að skapa sér fínustu færi. Staðan var 1-1 eða fram að 57. mínútu er Volos komst yfir með sjálfsmarki frá Konstantinos Dimitriou.

Boltinn barst til baka á markvörðinn sem spilaði honum á Dimitrou en hann ákvað að taka boltann í fyrsta og vippa honum aftur á markvörðinn. Það vildi ekki betur til en að boltinn fór yfir markvörðinn og í netið.

Skelfilegt sjálfsmark sem gaf Volos enn meiri kraft. Volos bætti við þriðja markinu og er komið áfram í næstu umferð.

Hægt er að sjá sjálfsmarkið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner