Fotbolti.net
28.11.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Rósa Hauksdóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Rósa ásamt John Andrews þjálfara Aftureldingar.

Rósa ásamt John Andrews þjálfara Aftureldingar.

Canon

Mynd: Afturelding

Kvennaboltinn
Rósa Hauksdóttir er gengin til liðs við Aftureldingu. Hún er 24 ára miðjumaður sem uppalin er í Val.
Hún æfði og spilaði með 2. flokki og meistarflokki KR frá 2006-2008 en þurfti að taka hlé frá knattspyrnu eftir að hún sleit krossbönd.

Hún hefur spilað með 1. deildar liði Fram undanfarin tvö ár og var markahæsti leikmaður liðsins síðastliðið tímabil með 9 mörk, þegar liðið vann riðilinn sinn í 1.deild, en tapaði í úrslitum um sæti í Pepsi-deildinni gegn Þrótti.

Rósa hefur spilað 29 leiki með meistaraflokki og skorað 10 mörk.

Afturelding mun styrkja lið sitt fyrir komandi leiktíð og er Rósa ein þeirra og nokkrir eru á leiðinni. Félagið tilkynndi á dögunum að Telma Þrastardóttir sé komin til þeirra úr Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.