28.11.16 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Andri í Grindavík (Staðfest) - Matthías og Magnús framlengja

Andri Rúnar Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Rúnar Bjarnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar Bjarnason hefur gengið til liðs við Grindavík en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið á laugardaginn.
Andri var í láni hjá Grindavík frá Víkingi R. í sumar en bæði félög vildu hafa hann í sínum röðum fyrir næsta tímabil.

Á endanum ákvað Andri að velja Grindavík en hann skoraði sjö mörk í sautján leikjum þegar liðið fór upp úr Inkasso-deildinni í sumar.
Á laugardaginn framlengdu Magnús Björgvinsson og Matthías Örn Friðriksson einnig samninga sína við Grindavík en þetta kemur fram á grindavik.net.
Matthías er varnarmaður sem kom til Grindvíkinga frá Þór fyrir tímabilið 2010 en í sumar spilaði hann 17 leiki í Inkasso-deildinni.
Magnús er kantmaður sem kom frá Haukum fyrir tímabilið 2011 en hann skoraði tvö mörk í sextán leikjum í sumar.

Matthías Örn Friðriksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Björgvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski