28.11.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Rakel Hönnu til LB07 (Staðfest)

Rakel er mætt í sænsku úrvalsdeildina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rakel er mætt í sænsku úrvalsdeildina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, hefur gengið í raðir LB07 í Svíþjóð.
Eins og kom fram á Fótbolta.net í síðustu viku þá höfðu félög í Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi áhuga á að fá Rakel í sínar raðir.

LB07 er staðsett í Malmö og leikur í efstu deild þar í landi. Þær enduðu í 9 sæti deildarinnar í nýliðnu keppnistímabili. Með liðinu leikur einnig Anna Björk Kristjánsdóttir landsliðskona.
Rakel kom til Blika árið 2012 og er ein af leikjahæstu leikmönnum félagsins frá upphafi.
Hún hefur leikið 158 leiki í græna búningnum og skorað 68 mörk og verið fyrirliði félagsins undanfarin ár og sem slíkur lyft bæði Íslandsbikarnum og Borgunarbikarnum.
„Blikar þakka Rakel innilega fyrir framlag hennar til félagsins og vonast til að síðasti kaflinn í þeirri bók hafi ekki verið skrifaður. Jafnframt óskum við henni velgengis á nýjum og spennandi slóðum,\" segir á Blikar.is.