28.11.18 - 18:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Davíð Atla framlengir samning sinn við Víking (Staðfest)

Davíð er 24 ára gamall.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð er 24 ára gamall.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Örn Atlason framlengdi í dag samning sinn við Víking Reykjavík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu hjá Fossvogsfélaginu.
Nýi samningurinn er til tveggja ára.
Davíð gegndi lykilhlutverki með Víkingi síðasta sumar og var útnefndur leikmaður ársins á lokahófi félagsins í haust. Víkingur endaði í níunda sæti Pepsi-deildarinnar síðasta sumar.
Davíð á að baki 72 leiki fyrir Víking í Pepsi-deildinni og hefur hann skorað í þeim fjögur mörk.
Lykilmenn eins og Alex Freyr Hilmarsson og Arnþór Ingi Kristinsson hafa horfið á braut hjá Víkingum og það eru því góð tíðindi fyrir félagið að halda Davíð.
Logi Ólafsson hætti með Víkingi eftir síðasta tímabil og tók Arnar Gunnlagusson við liðinu.
Hér að neðan er mynd af Davíð og Arnari að handsala samninginn.

Mynd: Víkingur R.