Fotbolti.net
28.11.18 - 19:22
Elvar Geir Magnússon

Garðar Gunnlaugs í Val (Staðfest)

Garðar Gunnlaugs er kominn í Val.

Garðar Gunnlaugs er kominn í Val.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Íslandsmeistarar Vals hafa sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að sóknarmaðurinn reynslumikli Garðar Gunnlaugsson hefur gert samning við félagið út næsta tímabil.

Garðar, sem er 35 ára, lék sem atvinnumaður í mörg ár með liðum eins og IFK Norrköping og CSKA Sofia. Garðar hefur leikið 234 leiki í deild og bikar á Íslandi og skorað í þeim 101 mörk.

Áður en Garðar fór í atvinnumennsku lék hann með Val og varð meðal annars bikarmeistari og meistari meistaranna með félaginu. Hann lék 48 leiki með Val og skoraði í þeim leikjum 25 mörk.

Hann kemur frá uppeldisfélagi sínu, ÍA, en hann lék 14 leiki í Inkasso-deildinni á liðnu sumri og skoraði tvö mörk. Hann var markakóngur Pepsi-deildarinnar 2016 með 14 mörk.

Garðar kemur í stað danska leikmannsins Tobias Thomsen sem er á leið aftur í KR samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Áður hafa Valsmenn fengið til sín Birni Snæ Ingason frá Fjölni og Kaj Leo í Bartalsstovu frá Val.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.