Fotbolti.net
28.11.18 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Tryggvi Guðmunds tekur við Vængjum Júpíters (Staðfest)

Tryggvi Guðmundsson er mættur í þjálfun.

Tryggvi Guðmundsson er mættur í þjálfun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Fyrrum landsliðsmaðurinn Tryggvi Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Vængjum Júpíters í 3. deildinni.

Tryggvi er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar en hann spilaði síðast með Kórdrengjum og KFS í fyrra.

Vængirnir enduðu í 4. sæti í 3. deildinni í sumar en Arnar Páll Garðarsson hætti sem þjálfari liðsins í haust.
Magnús Haukur Harðarson mun halda áfram sem aðstoðarþjálfari hjá Vængjum Júpíters.

Tryggvi er 44 ára gamall en hann skoraði tólf mörk í 42 landsleikjum á sínum tíma. Tryggvi spilaði lengi með ÍBV og FH á Íslandi sem og erlendis með Tromsö, Örgryte og Stoke.

Tryggvi var einnig aðstoðarþjálfari ÍBV fyrri hluta sumars árið 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.