28.11.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho: Er ekki mjög góður við Huijsen

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, er mjög ánægður með þróun Dean Hujisen hjá félaginu.
Huijsen gekk til liðs við Real Madrid frá Bournemouth í fyrra en Mourinho segir að Huijsen hafi ekki spilað vel á síðasta tímabili. Mourinho og Huijsen þekkjast vel en varnarmaðurinn spilaði undir stjórn Mourinho hjá Roma árið 2024.

„Hann var strákur þegar hann var hjá mér hjá Roma. Erfiðleikastigið í úrvalsdeildinni hefur bætt hann á margan hátt, og mín skoðun hafandi horft á hann utan frá er að síðasta ár var ekki gott. En sú staðreynd að hann þekkti mig hefur hjálpað að flýta fyrir þróun hans," sagði Mourinho.
Mourinho segir að Huijsen hafi tekist vel á við það að hafa ekki verið í landsliðshópi Spánar á HM.
„Hann er að vaxa mikið og hefur tekist vel á við pirringinn að fara ekki á HM. Ég hrósa honum ekki of mikið því það gæti skaðað hann. Hvernig ég haga mér sem þjálfarinn hans hjálpar honum því ég er ekki mjög góður við hann."